25.3.2008 | 10:40
Páskarokk ´08
P.s. Ég klikkaði alveg á páskaegginu! Er ekki einhver þarna sem vill gefa mér eitt slíkt?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.1.2008 | 20:59
Þannig var það...
„Ég taldi mig vera á réttri leið, tók skrefin mislöng í einu. Stundum fór ég aðeins frammúr mér og stundum slakaði ég á. En alltaf á þessari erfiðu göngu vissi ég vel í hvaða átt ég stefndi. Leiðin að hreinu lífi var við þennan enda á stígnum. Ég horfði í augun á eins árs gamalli dóttir minni og sagði henni að hún yrði örugg í mínu umhverfi það sem eftir væri af hennar lífi. Þó svo að hún hafi ekki sagt margt sökum lítillar málkunnáttu þá sá ég vel hvernig hún skynjaði öryggið í orðum mínum“ Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.1.2008 | 20:44
Erum við ekki lík?
Margrét Bára dóttir mín er matargat. Hún getur borðað allan daginn sé henni rétt eitthvað girnilegt og aldrei þurfa foreldrar hennar að hafa áhyggjur af því hvort hún gæti verið svöng. Mér skilst að mamma hennar hafi borðað vel sem barn en eitt veit ég, það gerði ég líka. Margréti finnst voða gaman að stelast í morgunkornið hjá ömmu sinni og þá vill hún fá að stjórna því sjálf hversu mikið og hvenær hún fær sér. Mamma kom að henni um daginn þar sem hún sat á gólfinu með morgunkornið í sinni umsjá. Það skemmtilega er að það er til samskonar mynd af mér á svipuðum aldri með morgunkornið á sínum stað :)
p.s. Svo var Alexander minn í fréttunum á laugardaginn síðasta. Þið getið séð það hérna: http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4397817/11
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.1.2008 | 16:34
Spakmæli dagsins
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.1.2008 | 09:20
Smá plögg!
Trúbadorarnir Birgir Örn, Denni og Biggi Olgeirs
verða á veitingahúsinu Við Pollinn á Hótel Ísafirði
laugardagskvöldið 2. febrúar.
Matur heft kl.18:30 og stendur til kl. 21:30
Trúbadorar byrja kl. 23:00 • Frítt inn
Tilboð á bjór
Matseðill:
Forréttur - Konungsleg humarsúpa
Aðalréttur: Hægt er að velja á milli:Naut með béarnarsesósu, lamb með rauðvínssósu eða Önd með einiberjagljáa
Eftirréttur - Súkkulaði samleikur. verð: 3.990,-
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.1.2008 | 08:42
Upp og niður...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
25.12.2007 | 16:47
Gleðilega hátíð kæru vinir!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.12.2007 | 15:06
Fjölskyldumyndatakan
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.12.2007 | 15:34
Rock´n roll
Ég reyndar borðaði yfir mig þannig það er ekkert að marka þessa mynd...
P.s. Mamma tók myndina!
Bloggar | Breytt 19.12.2007 kl. 09:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.12.2007 | 16:23
MINI COOPER til sölu!
Mini-inn minn er til sölu. Ekki það að hann sé gallaður eða ekki að standa sig, heldur vantar mig stærra skott+meira pláss. Ég hef eitthvað misskilið þetta þegar ég keypti hann, ég hélt að þetta væri mini station með skíðabogum og krók á "33 dekkjum. En svo er víst ekki. Þið megið ekki misskilja mig, hann er æði. Besti bíll/leiktæki sem ég hef keyrt. Hér koma nokkrar upplýsingar um hann: Árg. 2002 • Ekinn. 70 þ.km.
Litur: Dökk grænn (Jaguar-grænn) & svartur • ABS hemlar • Álfelgur • Fjarstýrðar samlæsingar Geislaspilari • Höfuðpúðar aftan • Innspýting • Leðuráklæði • Líknabelgir • Rafdrifnar rúður • Rafdrifnir speglar • Samlæsingar • Smurbók • Útvarp • Veltistýri og fleira
Áhugasamir hafið samband í síma: 847 3856 eða á honnun@bb.is
Bloggar | Breytt 30.1.2008 kl. 11:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)



aldis
polli
glomagnada
gunnarpetur
hlynur
ingvalg
matthildurh
sign
daglegurdenni
samlokugrill
vdp
ylfamist




